Velkomin að vef Tölvars ehf!

Aðsetur fyrirtækisins er að Síðumúla 1 í Reykjavík. Húsin á myndinni teljast bæði til Síðumúla 1 og voru reist á árunum 1982-84. Þarna hafa aðsetur sitt allmargar verkfræðistofur og þjónustufyrirtæki í rekstrarráðgjöf. Tölvar ehf flutti á svæðið vorið 1984, og hefur lengst af haft aðsetur sitt í neðra húsinu (til vinstri á myndinni). Á árum áður var hugbúnaðargerð og almenn tölvuþjónusta við fyrirtækin á staðnum veigamikill þáttur í starfssemi Tölvars.